. ÞORRABLÓT 2012 .
Þorrablótið verður aftur í ár haldið í húsi Starvsmannafelagsins,
J.H. Schrøtersgøtu 9, Þórshöfn, laugardaginn 28. janúar
Húsið opnar kl. 19.00
.
.
Kostnaður í ár er óbreyttur frá í fyrra, eða kr. 350 fyrir félagsmenn (sem hafa greitt ársgjaldið
fyrir 2011) og 450 kr. fyrir aðra gesti. Innifalið í verðinu er fordrykkur, og bragðgóður
 þorramatur, sem kemur með flugi frá Ìslandi. Konurnar í stjórninni gera eftirréttina, eins
og í fyrra. Bar verður opinn. Eitthvað létt og skemmtilegt verður á skránni.
Allir eru velkomnir.
Afar skemmtilegt var í fyrra hversu vel félagsmenn brugðust við að koma með skemmtiefni
 og vonum við að ekki verði lakara í ár. Ef einhver efast, er viðkomandi velkominn til þess að
hringja til einhvers í stjórninni og ráðfæra sig. Einnig Færeyingarnir!
 Leggið peninginn inn á reikning félagsins í BankNordik: 6460 – 1629664.
Skrifið nafn/nöfn og „Þorrablót“. Greiðslan gildir sem skráning.

                                          Seinasti frestur til að skrá sig á Þorrablótið er 15 janúar.

Kær kveðja
Stjórnin.

 

 

 

 

Við viljum þakka þessum fyrirtækjum stuðning þeirra 

 

vodafone.gif

Leita